Harður ?

Mér finnst það ekkert harkalegt að banna unglingi að fá sér húðflúr. Fólk getur bar beiði þangað til það er komið með sjálfræðisaldur og ekki lengur hægt að hafa vit fyrir því.

Reyndar er sumt húðflúr flott, en krakkar eiga það á hættu að láta flúra eitthvað á húðina, sem þeir sjá svo eftir að hafa valið þegar þeir komast til vits og ára.


mbl.is Jude Law harður húsbóndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögn yngri

Mér sýnist á sundfatnaðinum að þessar myndir gætu verið eitthvað yngri en 50-60 ára.
mbl.is Fann fjársjóð á gamalli filmu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekar léleg rök

Rökin fyrir banni á berum brjóstum eru þau, að berbrjósta konur hafa mótmælt á götum úti. Þegar mótmæli eru höfð í frammi í Bandaríkjunum, gerist það stundum að upp er tekin byssa og hún notuð til að skjóta mann og annan. Samt má bera byssur, vegna þess að annað er frelsissvipting. Ber brjóst eru að mínu viti mun hættuminni en skotvopn.
mbl.is Vilja banna berun brjósta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja

Maðurinn hennar þénar meira, en staða hennar versnar. Er vit í þessu ?


mbl.is Lilja Mósesdóttir íhugar gjaldþrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahérna !

Á svona hneysa sér stað annars staðar en í Bandaríkjunum ?


mbl.is Sjö ára yfirheyrður í tíu tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt í stíl

Fyrr má nú hagræða í menntakerfinu. Nú er svo komið að forsvarsmenn skólanna eru farnir að hrökklast burt úr starfi, því að ekki er lengur hægt kinnroðalaust að bjóða skjólstæðingum upp á sjálfsagða og lögbundna þjónustu. Ég mundi líka skammast mín fyrir að veita slíkri stofnun forstöðu.

Og nú er hægt að spyrða þá saman, skólana og spítalana, því að fjárhagurinn er svipaður.


mbl.is Tveir skólastjórar sögðu upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jájá

Þetta er mikil myndasyrpa, samtals ein mynd.

En Gleðilegt ár samt.


mbl.is Akureyringar fagna nýju ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanda sig !

Konur eru fórnarlömb fleiri glæpa en framdir eru, samkvæmt óyfirfarinni frétt.
mbl.is Svipti sig lífi eftir hópnauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara

Sammála þessu, bara ekki alveg.

Það kemur engum við hvort þú vilt vera ein eða eiga fjölskyldu. En þegar greiðslumat er gert, skiptir máli hvort tekjur einnar manneskju fara í greiðslu af láni til íbúðarkaupa, eða hvort fleiri eru þar inni í myndinni. Ég fengi ekki stórt lán ein, en með manninum mínum væri það leikur einn, því að tekjur okkar beggja væru til grundvallar útreikningum.

Ég ætlaði aldrei að eiga fjölskyldu og var einhleyp fram undir þrítugt. Ef einhverjum var ekki sama, tók ég bara ekkert eftir því.
Það var annað sem fólk tók frekar eftir, en það var sú staðreynd að ég drakk ekki og skemmti mér konunglega edrú innan um þá sem fengu sér í glas. Því átti fólk bágt með að trúa.


mbl.is Óþolandi athugasemdir í garð einhleypra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Von er,,,

,,,að mbl.is birti svona lagað. Hjá einstaka liðsmanni þar á bæ þarf ekki annað en hans eigið móðurmál til að úr verði vitleysa.
Þarna er frönskumælandi maður að sýna hlýtt viðmót og miðar við sitt eigið tungumál þegar hann yfirfærir kveðju sína á ensku. Auðvitað hefði mátt renna yfir bréfið fyrir hann og benda honum á, en mér finnst þetta bara krúttlegt Wink
mbl.is Hæðst að enskuvillu Frakklandsforseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband