Hafðu þetta - og hana nú !

Sem betur fer er ég ekki bruðlari, eiginlega bara nurlari ef því er að skipta.  Enda langar mig ekkert til að láta löðrunga mig. 

Nei, að öllu gamni slepptu, sýnast mér hænuskrefin vera of smá sem tekin eru í átt að siðmenningu hjá arabaþjóðum. 


mbl.is Í lagi að slá konu sína fyrir bruðl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuttur og digur

Ég velti fyrir mér af hverju vaxtarlags mannsins er getið í fréttinni.  Það, að hann fór með faðirvorið segir mér að hann geti verið trúaður og mér dettur í hug að hann hafi flett sig klæðum til að renna löggunni auðveldlegar úr greipum.  Nema hann sé strípalingur sem ekur um á adamsklæðum einum saman. Sideways Sideways
mbl.is Flúði og fór með Faðirvorið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berlínarmúrinn er heima hjá mér

Ég á danska vinkonu sem er baráttukona eins og þær gerast bestar.  Hún hefur í gegnum tíðina staðið fyrir innbrotum í tilraunastofur þar sem dýr hafa komið við sögu - og sleppt þeim lausum, hún hefur staðið fremst í flokki í mótmælum í sínu heimalandi og mörgum öðrum, hún hefur látið til sín taka í hinu og þessu þar sem henni hefur þótt einhver órétti beittur og svona mætti lengi telja.  Fyrir hin og þessi „óhæfuverk" hefur hún setið í fangelsi dag og dag og þótt það þess virði.   Sem sannur baráttujaxl þótti henni merkilegt til minja að eiga brot úr Berlínarmúrnum þegar hann var felldur - hún var að sjálfsögðu stödd þar og fylgdist með.  Þetta brot gaf hún mér og það liggur einhvers staðar á háaloftinu mínu.  Ég held að ég þurfi ekki að skila því til eins eða eins, en ég hef svo sannarlega ekkert við það að gera, nema ef ég gæti komið því í verð sem sögulegu grjóti og reddað þannig fjármálum mínum.  Ekki veitir af Wink
mbl.is Skiluðu flísinni 25 árum síðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trabant

Frændi minn átti Trabant sem hann ók á milli bæjarfélaga.  Á veturna þegar aðrir bílar komust við illan leik eða komust ekki, flaut Trabbi gamli ofan á snjóalögum og fór það sem eigandi hans vildi.  Eitt sinn ( eða oftar ) missti hann Trabba gamla út af veginum, en tafðist ekki svo nokkru næmi, því að hann steig út úr drossíunni, tók hana undir handlegginn og lyfti henni upp á veginn aftur, bankaði létt á ofurlitla beyglu sem snjóköggull hafði sett á brettið og slétti þannig úr feirunni, settist inn og ók af stað.  Svo var nú það.
mbl.is Trabantinn lifði dauðann af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins gott...

...að ekki stendur til að gera vaxmynd af mér Blush
mbl.is Í ræktina vegna feitrar vaxstyttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÚPS !!

Við hjónin ökum um á dýrasta bíl sem við höfum átt til þessa Frown
mbl.is Líklegastir til þess að halda framhjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fés

Ég er ein þeirra sem flakka um fésið, ef flakk skyldi kalla.  Að vísu kann ég lítið á það og nenni ekki að leggja mig eftir því meira en svo, að ég get „spjallað" og gert athugasemdir við hitt og þetta.  Sko mig !!

Dætur mínar eru fastagestir á fésinu.  Þær skrifa og setja inn myndir í gríð og erg og þarna fæ ég ýmsar upplýsingar um þær sem ég annars fengi ekki.  Hvaða unglingur nennir svosem að segja mömmu sinni frá sínum hjartans málum ?

Ég hef fengið beiðnir um að gerast vinur hinna og þessara og ýmist tek ég þá í mína vinatölu eða sleppi því, svo mikið kann ég.  Stundum koma upp nöfn sem ég kannast ekki við og ég hunsa beiðni frá þannig fólki.  Bóndi minn lenti í álíka uppákomu, en ólíkt mér hafði hann samþykkt fésvinkonu sem hann kannast ekkert við.  Í dag rakst hann á hana á flakki um síðuna sína og það olli honum miklum heilabrotum, því að hann þekkir hvorki haus né sporð á konustráinu.  Hann sá að sumir bræðra hans eiga þessa sömu vinkonu, svo að hann hafði samband við einn þeirra.  Sá kannast ekki heldur við meinta vinkonu, en báðir hafa þeir tekið hana í fóstur og vita ekkert hvenær eða af hverju.  Ég stakk upp á því við þá að þeir hefðu samband við vinkonuna og spyrðu hver hún væri, en þeim líst ekkert á þá tillögu. 

Ég legg til að þeir rifji upp hjá hverjum þeir lulluðu á meðan þeir voru ólofaðir..........


Afrekspiltur

Hér er á ferðinni afrekspiltur í íþróttum og ég fann fréttina litla og lítt áberandi innan um aðrar ekkert merkilegri.  Þarf maður að vera í boltaíþrótt til að eftir sé tekið ?  Mig langar bara að vekja athygli á fréttinni, þar sem við eigum fullt af duglegu fólki sem fáir vita af þar sem það fær ekki umfjöllun sem það á skilið.
mbl.is Brattur á brettinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira krútt

Mér finnst Susan Boyle miklu krúttlegri í sinni réttu mynd.  Eftir slipptökuna er hún bara eins og hver önnur kona, en áður tók maður eftir henni. 
mbl.is Susan Boyle dressar sig upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundur í óskilum

Þessi frétt minnti mig á að það er orðið nokkuð langt síðan ég hef heyrt af hinum svarfdælska hundi í óskilum.  Ætli hann sé hættur að troða upp ?


mbl.is Hundur fauk á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband