Langlífur

Ef Geoff blessuðum tekst nú að hætta að reykja, má ímynda sér að hann lengi líf sitt um einhvern tíma.  Þá er bara að vona að hann eigi sér einhver skemmtileg áhugamál úr því að hann er kominn á eftirlaun aðeins 56 ára gamall.
mbl.is Á eyðieyju án sígarettna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útsala ?

Það er fallega gert af húsbóndanum í Maison d'Envie í Berlín, að gefa afslátt á þjónustuna, komi viðskiptavinirnir í strætó eða hjólandi.  Verstur andskoti að mig sárvantar buxur en ekki hóru, því að mér sýnist á öllu að þarna sé um miklu betri útsölu að ræða en í mörgum íslenskum verslunum....
mbl.is Umhverfisvænt vændishús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hiti í mönnum...

Ætli þeim sé ekki heitara í hamsi en svo, að einn lítill runni sviðni, þeim sem ekki una glaðir við niðurstöður atkvæðagreiðslna dagsins á Alþingi ?
mbl.is Smávægilegur eldur við Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Faraldur ?

Á höfuðborgarsvæðinu  kraumaði eldur í potti og kalla þurfti út slökkvilið.  Engan sakaði þar sem eldurinn brann.  Ég frétti af eldi í potti hjá fólki sem ég kannast við, en þar sakaði heldur engan.  Og í gær, þegar þessir eldar brunnu, brann einnig eldur hjá mér.  Ég var að sjóða rabarbarasultu og brá mér fram í bílskúr eitt augnablik.  Á meðan notaði sultan tækifærið og vall upp úr pottfjandanum og út yfir helluborðið.  Upp kom svolítið bál og dálítill reykur, en bóndi minn slökkti snarlega í öllu saman áður en illa fór.  Helluborðið leit ekki mjög vel út svona fyrsta kastið og til að vera nú með allt á hreinu ef skemmdir hefðu orðið, tók ég myndir af blessuðu sultutauinu þar sem það boblaði kolsvart og illa lyktandi á hellunni.  En sem betur fór tókst okkur að verka herlegheitin upp og þrífa helluborðið þegar það hafði kólnað.  Það tók á sig fyrri mynd og er í fínu standi.  Sultuna sakaði ekki, fyrir utan það litla sem brann á bálinu.


mbl.is Pottur gleymdist á eldavél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skegg, skegg, skegg

Úlfar Eysteinsson verður þá bara áfram loðinn á kjammann


mbl.is 130 þúsund á fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtileg mistök

Ef Arnaldur hefði áfram verið tortímandi, hefði ég heldur viljað horfa á Snúð, Snabba, Míu litlu og allt það skemmtilega gengi í Múmíndal. 

Bæ ðe vei, væri ekki gaman að fá Múmínálfana í sjónvarp barnanna á ný ? Heart


mbl.is Múmínálfar í stað Tortímandans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær kýs maður rétt ?

Af tvennu illu er það skárra betra - og með það að leiðarljósi fór ég og kaus Samfylkinguna með rúmlega hálfum huga í alþingiskosningunum í vor.  En þegar ég hlusta á það sem ríkisstjórnin hefur fram að færa í ýmsum málum er varða hag heimilanna, langar mig í aðra röndina til að gráta heimsku mína og dómgreindarleysi í kjörklefanum, en um leið hef ég mér þá afsökun að trúlega hefði engin önnur útkoma úr kosningunum verið betri.  Þrátt fyrir allt er ég að vona að tíminn vinni með stjórninni og allt fari á besta veg.  Enda kannski ekki hægt að ætlast til árangurs á kortéri.

Af tvennu illu ER það skárra betra.


mbl.is Fjórðungur kjósenda tók ákvörðun á kjördag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvítis gæs

Systudóttir mín á þrjá yndislega syni á aldrinum 2-7 ára.

Þeir eru tónelskir mjög og þegar rödd dóttur minnar heyrðist á geisladiski í bílnum þeirra, sperrtu þeir eyrun og lögðu við hlustir.  Meðal laga sem þeir heyrðu, var eitt sem heitir Stelpuslagur og lýsir erjum á milli tveggja kvenna.  Einn drengurinn hlustaði glaður á og þegar fjölskyldan kom heim eftir ökuferðina, sagði sá stutti blíðum rómi:  „Mamma, þú ert helvítis gæs".

 


JIBBÍÍÍ, ÞAÐ ER KOMIÐ AFTUR !

Já, þá er Fanta Lemon komið á markað á ný. 

Ég er ekki mikið fyrir gosdrykki, en fari ég til annarra landa á ég það til að drekka Fanta Lemon.  Nú er orðið svo langt síðan ég hef fengið Fanta Lemon, að ég er hrædd um að ég sé orðin afhuga því eins og öðru gosi.  Undecided En ég bíð spennt eftir að sjá þennan eðaldrykk í gosrekkum verslana.  Ég mun örugglega kaupa eina flösku til að athuga hvort mér þyki drykkurinn eins góður og mig minnir að hann sé.  Ef ekki, verð ég bara að biðja baráttumenn fyrir bættum drykkjum afsökunar á því að svíkja málstaðinn.  Og vona þeirra vegna að Fanta Lemon sé komið til að vera.  Wink


Ferðafuður, hafið með ykkur nesti

Kona sem ég þekki brá sér í bíltúr um daginn ásamt vinafólki.  Þau óku um og dásömuðu landið okkar norðanvert og ætluðu svo, að loknum vel heppnuðum degi, að taka sér kaffihlé í Gamla bænum í Mývatnssveit.  Þegar þau komu þar inn, voru nokkrir viðskiptavinir að gæða sér á ilmandi kaffi og brauði, svo að þau hugsuðu sér gott til glóðarinnar og ætluðu líka að panta kaffi og „meððí".  En þegar þau litu á verðskrána, hættu þau snarlega við, settust út í bíl og óku heim, þar sem þau létu á könnuna og smurðu sér brauð.  Fyrir kaffibolla í Gamla bænum í Mývatnssveit þarf að greiða 400 krónur og brauðið kostar 700 eða 800 krónur, eftir því hvað valið er.  Nei, ég fer ekki í kaffi í Gamla bæinn í Mývatnssveit á meðan svona okur viðgengst.  BASTA !

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband