Fés

Ég er ein þeirra sem flakka um fésið, ef flakk skyldi kalla.  Að vísu kann ég lítið á það og nenni ekki að leggja mig eftir því meira en svo, að ég get „spjallað" og gert athugasemdir við hitt og þetta.  Sko mig !!

Dætur mínar eru fastagestir á fésinu.  Þær skrifa og setja inn myndir í gríð og erg og þarna fæ ég ýmsar upplýsingar um þær sem ég annars fengi ekki.  Hvaða unglingur nennir svosem að segja mömmu sinni frá sínum hjartans málum ?

Ég hef fengið beiðnir um að gerast vinur hinna og þessara og ýmist tek ég þá í mína vinatölu eða sleppi því, svo mikið kann ég.  Stundum koma upp nöfn sem ég kannast ekki við og ég hunsa beiðni frá þannig fólki.  Bóndi minn lenti í álíka uppákomu, en ólíkt mér hafði hann samþykkt fésvinkonu sem hann kannast ekkert við.  Í dag rakst hann á hana á flakki um síðuna sína og það olli honum miklum heilabrotum, því að hann þekkir hvorki haus né sporð á konustráinu.  Hann sá að sumir bræðra hans eiga þessa sömu vinkonu, svo að hann hafði samband við einn þeirra.  Sá kannast ekki heldur við meinta vinkonu, en báðir hafa þeir tekið hana í fóstur og vita ekkert hvenær eða af hverju.  Ég stakk upp á því við þá að þeir hefðu samband við vinkonuna og spyrðu hver hún væri, en þeim líst ekkert á þá tillögu. 

Ég legg til að þeir rifji upp hjá hverjum þeir lulluðu á meðan þeir voru ólofaðir..........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

'Ég þarf að læra á þetta fés,og kynnast þessari heiðurskonu sem þú vitnar þarna um.En að öllu gamni slepptu að þá held ég að þarna sé á ferðinni einhver njósnari í dulargerfi kvenmanns,já þetta eru vísjárverðir tímar sem maður lifir á núna.Næstum öllu er trúandi,,,,,,,,,,,ja það er bara svona.

Númi (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 22:21

2 identicon

Svo er möguleiki, eins og Anna Dóra lætur liggja að, að þarna sé á ferð gömul hjásvæfa...

núll (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband