Stolt af stelpunni

VÍNLAND

Ég, bloggsauðurinn, kann ekkert með myndir að fara á blogginu og geri því bara eitthvað.  Það hefur virkað hingað til og mun sjálfsagt virka áfram.

Þessa mynd bara varð ég að setja inn, því að stúlkan á henni miðri ( sem bendir til suðausturs frá tölvuskjánum mínum séð ), er dóttir mín, sem var að stíga sín fyrstu spor á fjölunum.  Söngleikurinn Vínland var frumsýndur í Freyvangsleikhúsinu í gærkvöldi og við sem lögðum batteríinu til þessa upprennandi stjörnu, vorum að sjálfsögðu viðstödd ásamt stóru systur leikkonunnar.  Sýningin var skemmtileg, vel upp sett og góð í alla staði.  Ég legg ekki í vana minn að gagnrýna leikverk, enda lítið á  ferð í leikhúsum og hef lítið vit á, en í Freyvangi gærkvöldsins var gaman að vera og  móðurhjartað sló svo ákaft af stolti, að við lá að sessunautar mínir heyrðu það.  Og þó var tónlistin nokkuð hávær.  Þarna var á ferð, auk dóttur minnar, margt frábært, ungt og upprennandi leikhúsfólk og það voru örugglega fleiri móðurhjörtu sem slógu í takt við mitt.  Lái okkur hver sem vill. 

Ef þú ert á ferð um Eyjafjörð og veist ekki hvað þú átt að taka þér fyrir hendur, skora ég á þig að bregða þér í Freyvangsleikhúsið og sjá VÍNLAND.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

VÍNLAND,,,,,,,,,ha,,,,,,,,,,er frítt að drekka eða hvað,er vatni breytt í vín.?Segðu kona góð,um hvað fjallar þessi vínsöngleikur.Til hamingju með afkvæmið tek undir það sem foreldri hve maður getur verið að springa úr stolti skil það vel.Ví,,Ví ,,,Vínland,hik,hik.

Númi (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 23:58

2 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Já, Númi minn.  Vín, vín, vín.  Vínland það, sem dóttir mín dvaldi á um stund, á sér fyrirmynd í Íslendingasögum - Eiríks sögu rauða og Grænlendingasögu, sem segja frá landafundum norrænna manna.  Ég heyrði viðtal við dóttur mína á útvarpsstöð Akureyringa, Voice, þar sem hún sagði að þetta væri eiginlega skemmtilegri hliðin á þessum sögum.  Og það er einmitt það sem þetta er.  Skemmtilegt skáldverk byggt á þessum sögum.  Farðu og sjáðu sjálfur ef þú ert nærri.  Ég get lofað þér góðri skemmtun.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 22.2.2009 kl. 10:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband