13.11.2010 | 18:05
Ofan gefur snjó á snjó
Þegar ég var barn snjóaði að jafnaði mun meira á Akureyri en við eigum nú að venjast.Eða er það bara eitthvað sem mig minnir? Mér þótti fátt skemmtilegra en að leika mér í snjónum og þá dugði alveg eitt skúrþak til að renna sér af eða ein snjóþota að fara með upp í skíðabrekku. Við Ránka vinkona mín, bjuggum til göng sem byrjuðu í enda snjóruðnings og enduðu í hinum endanum. Gjarnan voru nokkrar útgönguleiðir þar á milli. Við krakkarnir grófum út himinháa snjóhóla sem rutt var upp við enda gatna og þar var miðstöð mikilla ærsla og leikja. Á meðan skautasvellið var á malarvellinum við Glerárgötu, jafnaðist ekkert á við að skella sér á skauta að kvöldlagi þegar svellið var upplýst, því vel við haldið og einhverjir strákar með aðstöðu í skúr við svellið spiluðu tónlist af vínilplötum.
Nú er semsagt byrjað að snjóa í alvöru á Akureyri og ég, andstætt öðrum fjölskyldumeðlimum, er í besta skapi yfir því.
Snjóhengja féll á barn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er akkúrat svona í minningunni. Mikill snjór allan veturinn, stuð á skautasvellinu, allir í stórfisk ungir sem aldnir.
Margrét (IP-tala skráð) 13.11.2010 kl. 22:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.