17.4.2010 | 10:14
Brókalallar
Ég þekki nokkra unga menn sem ekki nenna að hysja upp um sig buxurnar og þeir ganga allir eins og þeir séu búnir að skíta á sig og orðnir vel brunnir undan. Þeir hljóta að fá í bakið fyrr en seinna, því að það sem heldur brókunum uppi er hið fáránlega göngulag sem þeir hafa orðið að tileinka sér.


![]() |
Upp með brækurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ha ha :) Þetta er það sama sém ég hélt.
Sá þetta fyrst þegar ég var í biðröð í Búnaðarbankanum gamla við Esjuna, þar stóðu tveir ungir menn með buxurnar hangandi. Mér leið eins og þeir væru búnir að kúka á sig´og ég fékk algör klíu, lá við að ég ældi, er ekki að grínast.
Rabbi (IP-tala skráð) 17.4.2010 kl. 10:22
Ég velti fyrir mér hvort ekki sé sparnaður fyrir þá og vinnusparnaður fyrir mæður þeirra ef þeir gengju bara ekkert í buxum fyrst þá langar svona voðalega mikið til að sýna nærhöldin.
Anna Dóra Gunnarsdóttir, 17.4.2010 kl. 10:50
Minnir mig alltaf á róna sem eru búnir að gera í buxurnar.
Einar Steinsson, 17.4.2010 kl. 17:20
þetta segir bara fólk sem er fætt um seinni heimstyrjöld , það eru allir svona þvi það þykir hallærislegt að ganga um girtur með rassin út
Arnar Freyr Sigurðsson (IP-tala skráð) 17.4.2010 kl. 23:13
Ef að ég kýs að labba um með buxurnar á hælunum þá bara geri ég það. Það er alltaf skrýtið að sjá fólk væla svona útaf einhverju eins smávægilegu og þessu, það er greinilega of lítið að ske í ykkar lífi fyrst þetta er að fara svona í taugarnar á ykkur, ég geng ekki uppað næsta manni í lopapeysu og segji ''andskotinn maður farðu úr þessari peysu þetta er forljótt''. Ef hann vill vera í lopapeysu er það hans mál! Þessi afskiftasemi er alveg stórfurðuleg! og að þið skulið vilja kalla ykkur fullorðið fólk og eruð ekki enn búinn að átta ykkur á að hver og einn einstaklingur er með misjafnan smekk!
Jóhann Jóels (IP-tala skráð) 18.4.2010 kl. 18:21
þetta mun örugglega ekki ganga i gegn þar sem gallabuxnaframleiðsla á eftir að dragast rosalega saman i bandarikjunum þvi karlmenn frá aldrinum 12-30 vilja bara vera með buxurnar á hælunum ,. þvi munu allir bara ganga i jokking buxum
Arnar Freyr Sigurðsson (IP-tala skráð) 18.4.2010 kl. 23:22
Fyrirgefðu Jóhann, ég hefði kannski átt að orða athugasemdina öðruvísi. Engu að síður finnst mér svolítið sérstakt að sjá göngulag fólks með buxurnar á hælunum. Það fer samt ekkert í taugarnar á mér, ég bara lagði skoðun mína til málanna. Ég á fleiri en eina lopapeysu og þær eru frá því að vera hallærislegar upp í einhverja tískuflík. Sú þeirra sem telst nýtískulegust, er jafnframt sú sem mér finnst síst að vera í (ekkert vont samt) og ef einhverjum þykir ég álappaleg í henni (eða öðrum flíkum), er það bara hið besta mál. Annars fannst mér ekki vælutónn í því sem ég skrifaði og líf mitt er fullt af skemmtilegum uppákomum. Eigðu góðar stundir í hvaða buxum sem er.
Anna Dóra Gunnarsdóttir, 20.4.2010 kl. 15:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.