4.10.2009 | 10:57
Hvenær ..
.. koma eigendur blendingshunda og sýna seppana sína ?
Ég á litla tíkartortu, blandaða og afskaplega fallega. Hún vekur sums staðar athygli fyrir fegurð og skemmtilegheit, en engan langar að sjá hana á sýningu. Af hverju ætli það sé ?
Það er ekki það, að mig langi að sýna hana á þeim vettvangi, síður en svo, en ég velti þessu samt fyrir mér af og til.
Besti vinur mannsins á sýningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er þetta ekki bara það sama og merkjasnobbið í fatnaði og öðru? Blendingshundar geta vel verið jafn fallegir og hreinræktaðir hundar.
Ég á einn, sem er bæði fallegur og skynsamur, en enginn vill svoleiðis hunda á sýningar.
Maður er jafn hæstánægður með hundinn sinn fyrir því. Hann veitir ekkert minni gleði og ánægju á heimilinu, heldur en hinir.
Axel Jóhann Axelsson, 4.10.2009 kl. 11:12
Fyrir svo utan hvað við getum verið alveg óhrædd um að skítugur pels í dag skemmi morgundaginn.
Anna Dóra Gunnarsdóttir, 4.10.2009 kl. 11:17
Í dag kom vinkona mín heim með tíkina sína eftir sýningu í reiðhöllinni. Sú ferfætta var hin glaðasta, en tvífætlingurinn síður. Þessar tvær eru, þrátt fyrir hreinræktun og verðmæti voffans, til í tuskið og börnin leika við tíkina og klístra eflaust einhverju fyrrverandi góðgæti í feldinn hennar. En öllum er sama og þarna er ekki snobbið á ferð, eins og Axel Jóhann nefnir fylgikvilla þess að eiga hreinræktaðan hund. Skítt með verðlaunapeninga, hundar hafa ekkert gagn af þeim.
Anna Dóra Gunnarsdóttir, 4.10.2009 kl. 22:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.