16.4.2009 | 18:24
Löggan út fyrir verksvið sitt
Ég hélt að lögreglan hefði nóg að gera við hefðbundin löggæslustörf og ætti undir engum kringumstæðum að ganga inn á verksvið annarra. Eða er það kannski í starfssamningum brynvarinna lögreglumanna að rífa niður gömul hús ?
Fékk hland fyrir hjartað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það vakti einmitt spurningar að sjá lögguna taka það að sér að rífa heilt hús, svona í hjáverkum... Skyldi vera aukabónus fyrir niðurrif ?
Hildur Helga Sigurðardóttir, 16.4.2009 kl. 18:47
Hvernig átti lögreglan að ná fólkinu öðruvísi út? Fólkið vildi ekki fara og bar búið að byrggja sig vel inni, þá var bara að saga liðið út.
Gummi (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 22:23
Gummi: hvernig hefði bara verið að bíða? Fólkið hefði komið út á endanum.
Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 16.4.2009 kl. 23:03
Rugl að nota sagir, bara táragas og það strax. Þreif fólkið kúkinn og hlandið eftir sig ? Hver á að gera það þá ?
össi (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 23:52
hvaða kúk og hland er þetta sem fólk er alltaf að tala um
Ægir (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 09:08
Gummi: Lögreglan þurfti ekki að rífa húsið svo að segja niður til að ná fólkinu út. Það sást í sjónvarpinu hvar þeir voru að berja út heilu gluggana og henda timbri og ýmsu dóti út á hlað og sú aðgerð sneri engan veginn að því að reka út fólk og handtaka það.
Össi: Af hverju heldur þú að hústökufólk sé óþrifnara en aðrir ? Hvað viltu meina að það hafi skilið eftir sig afurðir búksins ?
Anna Dóra Gunnarsdóttir, 17.4.2009 kl. 15:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.