18.1.2009 | 12:31
Hvar eru svörin ?
Ráðamenn þjóðarinnar þykjast vera að vinna í málum og gera eitthvað fyrir fólkið í landinu. En á meðan kjaftar þeirra eru kyrfilega límdir aftur og enginn kemur með svörin, er ekki von að mönnum endist þolinmæði til að bíða. Enda margir á vonarvöl og geta hreinlega ekki beðið í það óendanlega. Auðvitað verður landflóttinn óumflýjanlegur við þessar aðstæður. Og þeir einu hér á landi sem hafa eitthvað upp úr því eru Eimskip, en þar á bæ er nóg að gera um þessar mundir við að skutla okkur til útlanda með allt okkar hafurtask. Ég gæti alveg hugsað mér að fara, en hef ekki tök á því sem stendur.
Aukinn útflutningur á búslóðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.