Oj,bjakk

Ég var að horfa á fyndin fjölskyldumyndbönd á Skjá Einum.  Nokkur dæmi komu um börn sem æla út um allt og þar á meðal upp í foreldra sína eða aðra.  Þá rifjaðist upp fyrir mér atvik frá því yngri dóttir mín var u.þ.b. tveggja ára.  Hún var með einhverja lurðu þegar hún háttaði um kvöldið, en sofnaði fljótt.  Um nóttina vaknaði hún alveg  ómöguleg, svo ég tók hana upp í til mín.  Við steinsofnuðum báðar, andlit í andlit á sama koddanum.  Allt í einu rumskaði ég við eitthvert gutl og um leið og ég fékk almennilega meðvitund, ældi krakkinn.  Spýjan skutlaðist í andlitið á mér, en var svo þykk að hún rann ekki einu sinni.  Því varð ég bókstaflega að moka úr auga til að sjá.  Ég hentist á fætur og tók stelpuna með mér niður á bað til að þrífa okkur báðar.  Mér varð litið í spegil og þar blasti við mér ælukleprað andlit með djúpa holu inn að öðru auganu, restin sat bara föst þar sem hún hafði lent.  Ég hló svo mikið að ég gat ekki sinnt hríðskjálfandi barninu.  Hún var hálfdauð úr kulda og foxill við mig þegar ég loksins tók á mig rögg og skóf afganginn úr andlitinu.  Síðan fórum við saman í heita sturtu og allt féll í ljúfa löð.  LoL LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hahaha oj bara

Katrín (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 08:15

2 identicon

hahaha eitt það fyndnasta sem ég hef heyrt

Lilja Björk Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 17:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband