Best að halda sig heima

Maðurm má ekki bregða sér af bæ eitt augnablik án þess að allt fari í steik.  Ég var á Rhodos alla síðustu viku og á meðan lögðust fjármál heimsins banaleguna.  Sem betur fer virðist þeim ætla að takast að rísa upp af banabeði.  Svo var þó ekki með Newman sáluga, enda karlinn farinn að kröftum og hefur trúlega dáið saddur lífdaga.  Á Íslandi brann bátur, bíll tók ranga stefnu og fór annað en ætlað var, ég missti af sjálfboðavinnu hjá kórnum mínum og mín biðu tveir gulir miðar frá bankanum.  En nú er ég komin heim og ætla að kippa því í liðinn sem að mér snýr.  Aðrir verða að bjarga hinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ þú bjargar þessu nú fyrir mig líka   Bara að kvitta fyrir komuna svona einu sinni, annars er ég hinn þögli aðdáandi þinn.....

SGÞ (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 19:52

2 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

SGÞ, þú ert náttúrulega BEST

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 30.9.2008 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband