Skamm,skamm, Marta Smarta

Mín skoðun er þessi:  Mér finnst það út í hött að segja að Lydia Bright virki feit í fína kjólnum sínum. Hún ber hann vel og hann sýnir hve fallegur líkami hennar er. Aftur á móti sýnir samskonar kjóll Katrínar litlu Middleton, að hún er að horfalla. Hún er gullfalleg, stúlkan, en bara ALLT OF GRÖNN. Vonandi fær hún þá hjálp sem hún þarf svo sárlega á að halda, hafi ég rétt fyrir mér með heilsu hennar. Og ég vona einnig að Marta Smarta gæti orða sinna í framtíðinni, hvað varðar ungt fólk og útlit, því að umfjöllun sem þessi, er því miður til þess fallin að ýta undir lystarstol stúlkna.

 


mbl.is Þessi kjóll er ekki flottur á öllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

mikið er ég sammála þér, finnst hún miklu flottari í kjólnum en Kata

Huld S. Ringsted, 1.6.2011 kl. 22:53

2 identicon

Ótrúleg ummæli hjá þessari Mörtu. En konur eru konum verstar hvað líkamsvöxt varðar . Það hefur sannast oftar en einu sinni.

jonas (IP-tala skráð) 2.6.2011 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband