14.5.2009 | 15:19
Helvítis gæs
Systudóttir mín á þrjá yndislega syni á aldrinum 2-7 ára.
Þeir eru tónelskir mjög og þegar rödd dóttur minnar heyrðist á geisladiski í bílnum þeirra, sperrtu þeir eyrun og lögðu við hlustir. Meðal laga sem þeir heyrðu, var eitt sem heitir Stelpuslagur og lýsir erjum á milli tveggja kvenna. Einn drengurinn hlustaði glaður á og þegar fjölskyldan kom heim eftir ökuferðina, sagði sá stutti blíðum rómi: Mamma, þú ert helvítis gæs".
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.