Ekki öllu hent út !

Þegar ég skoðaði myndirnar með frásögninni um þessa íbúð, sýndist mér hún bara í góðu lagi og það hefur, sem dæmi, heppnast alveg ágætlega að flikka upp á eldhúsið, fyrir utan hvað mér persónulega þykir það allt of dökkt. En málið snýst ekki um það, heldur hitt, að þarna les maður út úr fréttinni að ekki sé ullað framan í fyrri eigendur með því að gefa skít í allt sem þeir höfðu átt og síðan selt. Hvort Marta smarta var undrandi á því eða hæstánægð, veit ég ekki, en þetta lyktaði af því að hennar skoðun sé sú, að ekki sé nú verra að flysja innan úr húsnæði á milli eigenda.

Ég átta mig alveg á því að til er fólk sem langar í húsnæði á hinum eða þessum staðnum, en það sem býðst hentar kannski ekki nógu vel. Og ef þetta fólk á sand af seðlum og munar ekkert um, getur það auðvitað keypt sér húsnæði og gert við það eins og því sýnist, en ég skil samt ekki þá töluvert útbreiddu skoðun að nauðsynlegt sé að rífa niður og henda út, ef ekki öllu, þá flestu, þegar flutt er í „nýja" íbúð. Auðvitað þarf stundum að gera slíkt, en ég heyri allt of oft um tilvik þar sem fólk gengur berserksgang í fallegu og vel förnu húsnæði, bara til að breyta. Málning gerir oft kraftaverk og viðgerð, sé hún nauðsynleg, þarf ekki að ganga út á að umbylta hundruðum fermetra, rífa veggi, reisa veggi, skipta um skápa og gólfefni og hver veit hvað -og henda jafnvel milljónum út um gluggann. Ætti maður þá ekki frekar að byggja bara sjálfur eða kaupa fokhelt ?

Ég biðst afsökunar, hafi ég rangt fyrir mér Blush


mbl.is Innlit í eitursvala íbúð í Hlíðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband