Er hún ekki of gömul ?

Hún hlýtur að vera allt of gömul, kerlingin, til að þola svona flandur.
mbl.is Drottning á ferð og flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jamm

Smile Sautjánhundruðogsúrkál Smile


mbl.is Frosið súrkál olli umferðaröngþveiti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

?

Af hverju þarf að fljúga frá litlu Akureyri eftir slösuðum í Chambery í Frakklandi ?
mbl.is 17 tíma sjúkraflug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki öllu hent út !

Þegar ég skoðaði myndirnar með frásögninni um þessa íbúð, sýndist mér hún bara í góðu lagi og það hefur, sem dæmi, heppnast alveg ágætlega að flikka upp á eldhúsið, fyrir utan hvað mér persónulega þykir það allt of dökkt. En málið snýst ekki um það, heldur hitt, að þarna les maður út úr fréttinni að ekki sé ullað framan í fyrri eigendur með því að gefa skít í allt sem þeir höfðu átt og síðan selt. Hvort Marta smarta var undrandi á því eða hæstánægð, veit ég ekki, en þetta lyktaði af því að hennar skoðun sé sú, að ekki sé nú verra að flysja innan úr húsnæði á milli eigenda.

Ég átta mig alveg á því að til er fólk sem langar í húsnæði á hinum eða þessum staðnum, en það sem býðst hentar kannski ekki nógu vel. Og ef þetta fólk á sand af seðlum og munar ekkert um, getur það auðvitað keypt sér húsnæði og gert við það eins og því sýnist, en ég skil samt ekki þá töluvert útbreiddu skoðun að nauðsynlegt sé að rífa niður og henda út, ef ekki öllu, þá flestu, þegar flutt er í „nýja" íbúð. Auðvitað þarf stundum að gera slíkt, en ég heyri allt of oft um tilvik þar sem fólk gengur berserksgang í fallegu og vel förnu húsnæði, bara til að breyta. Málning gerir oft kraftaverk og viðgerð, sé hún nauðsynleg, þarf ekki að ganga út á að umbylta hundruðum fermetra, rífa veggi, reisa veggi, skipta um skápa og gólfefni og hver veit hvað -og henda jafnvel milljónum út um gluggann. Ætti maður þá ekki frekar að byggja bara sjálfur eða kaupa fokhelt ?

Ég biðst afsökunar, hafi ég rangt fyrir mér Blush


mbl.is Innlit í eitursvala íbúð í Hlíðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og fávís kona

Ég spyr eins og fávís kona, hvort eitthvað sé að því að Eve sé bara í griðarstað sela, þar sem hún er núna?
mbl.is Vilja senda Eve til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oooh

Guð, hvað regnhlífin er mikið krútt !!
mbl.is Passaði að Middleton rigndi ekki niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahérna

Illt er nú í efni. Ég hef verið með mín viðskipti í Byr, áður Spanor, áður Sparisjóður Akureyrar, áður Sparisjóður Glæsibæjarhrepps. En nú er verið að selja mig eins og hverja aðra mellu, ég á að fara yfir í Íslandsbanka, segi ég ekki upp þessu ævilanga sambandi mínu við Sparisjóðinn minn. Ég hef alltaf mætt góðu atlæti í Íslandsbanka og starfsfólkið eð alúðlegt og gott við mig í alla staði. En ég bara má ekki til þess hugsa að fólkið mitt í Byr hætti að vera fólkið mitt. Ég hef átt svo mikið og gott samband við það og mér þætti helvíti skítt ef það fengi ekki að flytja með mér. Ef svo fer, að ég flyt ein, veit ég ekki hvað ég á helst að gera, því að mér finnst það prinsipp mál að standa með mínu fólki. En ég verð líka að geta treyst bankanum sem ég skipti við og því er ég sett í skelfilega aðstöðu, að þurfa að velja á milli þess hvort ég stend með fólkinu mínu í Byr eða sjálfri mér. Plííís, leyfið mér að taka mitt Byrfólk með yfir í hinn bankann sem reynst hefur mér svo vel.
mbl.is Ráðinn til Íslandsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

USA

Er von að maður hlæi að bandarískum dómstólum. Og þó er ekki hlæjandi að svona mannskemmandi framkomu við saklaust barn. 

Samkvæmt þessum úrskúrði, þarf trúlega að dæma ÖLL börn í Bandaríkjunum fyrir ósæmilega hegðun frá fæðingu, þar sem bannað er að stríplast, jafnvel á eigin heimili.


mbl.is Sjö ára sakaður um kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjúskaparbrot?

Blessuð konan var ekkja og hvergi kom fram að hún væri gift aftur. Hvernig gat hún þá framið hjúskaparbrot ? 


mbl.is Grýttu og skutu mæðgur til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú?

Óheppinn var hann að búa í Simbabve. Í einhverju landi hjátrúar og hindurvitna hefði karlanganum verið dæmt í vil og asnanum gert að ganga eð eiga hann.


mbl.is Segir vændiskonu hafa breyst í asna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband