23.5.2012 | 12:00
Æ,æ,æ
|
Ostar urðu skjálfta að bráð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2012 | 11:38
Vandinn færist til
Ég gleðst auðvitað fyrir hönd þeirra sem þarna gætu eygt úrbætur og hætt að óttast að vera allt í einu á götunni. En það liggur við að ég fagni ekki, því að mér dettur helst í hug að þessar aðgerðir geri fátt annað en að færa vandann af einum stað yfir á annan. Þeir sem nú fá vaxtabætur, geta átt von á því að þær lækki verulega eða falli alveg niður. Þar með er hætta á að margir sjái ekki lengur björgunarhringinn sem hefur fleytt þeim áfram með herkjum og það getur orðið til þess að fleiri og fleiri missi húsnæði sitt. Og þá fjölgar þeim sem þurfa á húsnæðisbótum að halda,svo að vitleysan fer bara í hring og ekkert sparast í þjóðarbúinu. Í besta falli gerist ekkert af þessu og ég vona það auðvitað, en ég verð bara að viðurkenna að ég er of bölsýn til að sjá þetta jákvætt til lengdar. Legg ég svo á og mæli um að ég hafi kolrangt fyrir mér.
Hins vegar þætti mér ekki verra að sjá leiguíbúðakerfi á borð við það sem tíðkast víða erlendis, þar sem fólk getur leigt alla sína ævi, kjósi það svo. Ég veit ekki hvernig slíkt kerfi gengur fyrir sig og er hrædd um að það gengi ekki hér í okkar litla samfélagi, en mikið held ég að það gæti létt á sálarlífi hálfrar þjóðarinnar.
|
Vaxtabætur gætu lækkað mikið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2012 | 03:16
Ekki er öll vitleysan eins
Ætli ég færi ekki með veggjum frekar en að vekja á mér athygli með endurgreiðsluvæli, væri ég uppvís að svo mikilli heimsku að trúa því að skór einir og sér gerðu mig granna eða flikkuðu upp á minn feita rass. Hitt er svo annað mál, að ef ég ætti svona skó og notaði þá til að hlaupa eða þjálfa mig á annan hátt, væri ég vís til að leggja af eða fá stinnan þjó.
|
Blekktu neytendur með skóauglýsingum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.5.2012 | 23:07
Erfitt mál
Það fer dálítið eftir móðurmáli einstaklinga hvernig þeim tekst að læra nýtt og erfitt tungumál. Sumir ná íslensku fullkomlega eða mjög vel en fyrir marga innflytjendur er íslenskan mjög erfið. Svo erfið, að sumir ná aldrei tökum á henni. Aðrir læra að skilja hana, misvel kannski, en nóg til að bjargast. Margir þeirra tælensku innflytjenda sem ég þekki og hafa lært íslensku að einhverju leiti, munu aldrei ná tökum á því að tala hana þokkalega, vegna þess að hljóðin í íslensku eru þeim einfaldlega allt of erfið. Við verðum að sýna þessum nýju Íslendingum þolinmæði og skilning, ekki hroka og mannvonsku. Við getum örugglega ekki ímyndað okkur erfiðleikana sem margir hafa gengið í gegnum og ástæður fyrir komu þeirra hingað, en þeir þurfa síst af öllu á því að halda að fá kalda strauma frá okkur við komuna til nýja landsins.
Getur ekki verið að við eigum einhvern þátt í því að sumt aðflutt fólk talar ekki betri íslensku en raun er ? Ég veit ekki betur en að við notum hvert tækifæri sem gefst til að æfa okkur í erlendum tungumálum um leið og við komumst í tæri við útlendinga. Hvernig væri að við töluðum íslensku við innflytjendur og legðum okkar af mörkum til að koma þeim inn í þjóðfélagið ? Og eitt enn: tölum skýrt, ekki of hratt og veljum einföld orð og setningar og hjálpum þannig meðbræðrum okkar og systrum sem komu um langan veg í leit að betra lífi.
|
Íslenskan ein ekki lykill að samfélaginu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.4.2012 | 00:34
Missti fæturna
|
Kom að fyrrverandi í sundlauginni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2012 | 14:07
1. maí
Mér hefur alltaf þótt það forkastanlegt að 1. maí skuli ekki vera frídagur víðar en raun er. Það er út í hött að hafa flestar verslanir opnar á þessum degi og enn meira út í hött að við skulum vera orðin svo háð því að komast í búðarráp daga og nætur, að við fáum nett áfall ef slíkt er ekki í boði. Fæstum er of gott að skipuleggja sig með það í huga að ekkert vanti þessa örfáu daga á ári sem verslanir ættu að vera lokaðar. Auðvitað koma upp tilfelli, þar sem eitthvað gleymist í innkaupum sem erfitt er að vera án. Við sem lendum í slíku, getum vonandi fengið að láni hjá nágranna eða fjölskyldu þangað til næst verður opið í búð, en tilfellunum hlýtur að fækka þegar við venjumst þeim sið, að verslunarfólkið, sem í of mörgum tilfellum er illa launað, eigi líka frí. Ég skil vel að þetta fólk, sem leggur nótt við dag við að ÞJÓNA OKKUR HINUM, sjái þarna tækifæri til að auka tekjurnar og taki því þessari vinnu fegins hendi, en ef það á ekki kost á slíku, er það bara í fríi eins og svo margir aðrir og hvílist eða skemmtir sér við eitthvað og kemur svo endurnært til vinnu á ný. Það eru líka einskonar laun, þó í öðru formi sé.
Svo má hækka laun þessa fólks og útrýma þannig þörfinni fyrir botnlausa aukavinnu, enda koma viðskiptavinirnir á opnunartíma, ætli þeir að versla og þannig verður innkoman eins, þó salan fari fram á virkum degi.
|
Frídagarnir þynnast út |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2012 | 09:35
Úps,
Mikið öryggi felst í því að leyfa almenningi að eiga byssur. En Úúúps!!
|
Skaut föður sinn vegna leikjatölvu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.4.2012 | 16:40
Pínlegt ?
Auðvitað getur það valdið tilfinningaróti og vandræðum að lenda í svona málum, en þessi fjölskylda brást flott við. Amman greinilega hrekkjusvín á lífsleiðinni.
En hinn dæmigerði Ameríkani er alltaf fljótur til, komi eitthvað upp á og bregst oftar en ekki við með því að heimta peninga.
|
Líkunum var víxlað í kistulagningu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2012 | 19:38
Einfalt...eða nei...
|
Eineltismál innan slökkviliðsins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2012 | 13:11
Nei
Mér þykja þær myndir sem ég sá í fréttaskýringunni á mbl.is mjög ljótar og sé ekki annað en að hver sem er geti klesst einhverju álíka á léreft. Ég bið listunnendur afsökunar, hafi ég stuðað þá.
En ég er líka aldeilis ólærð í listfræðum.
|
Verðmætasta sýning frá upphafi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)




kaffi
gattin
himmalingur
joningic
vefritid
lundi12




